Heimildarmyndin Citizenfour hlaut Óskarinn í flokki heimildarmynda nú rétt í þessu.
Heimildarmyndin segir frá uppljóstraranum Edward Snowden sem hefur vakið heimsathygli fyrir að leka leynilegum upplýsingum frá NSA í fjölmiðla. Kynnir hátíðarinnar, Neil Parick Harris, brá á (orða)leik eftir að aðstandendur kvikmyndarinnar höfðu veitt Óskarnum viðtöku og sagði að viðgang kvikmyndarinnar hefði ekki getað verið viðstaddur vegna einhverja landráða eða „treason“ sem á ensku rímar við orðið „reason“.
Hér að neðan má sjá stikluna fyrir heimildarmyndina.