Keppandi ANTM myrt

Mirjana Puhar birti þessa mynd af sér á Instagram í …
Mirjana Puhar birti þessa mynd af sér á Instagram í nóvember. Instagram

Mirjana Puhar, keppandi 21 seríu Americas Next Top Model (ANTM), fannst látin á þriðjudaginn. Puhar var myrt á heimili kærasta síns í New York.

Tyra Banks, þáttastjórnandi ANTM, er miður sín yfir missinum og gaf út yfirlýsingu í gær til Access Hollywood. Banks sendi fjölskyldu hinnar 19 ára Puhar samúðarkveðjur í yfirlýsingunni. „Þetta var lífleg og efnileg ung stúlka,“ sagði meðal annars í yfirlýsingunni.

Aðrir keppendur 21 seríu af ANTM og dómarar keppninnar hafa þá líka sent fjölskyldu Puhar kveðjur og minnst fyrirsætunnar, ýmist á Twitter eða Instagram.

Puhar fannst látin ásamt kærasta sínum og öðrum manni í íbúð í New York. Fólkið fannst látið á heimili kærasta Puhar en fregnir herma að Puhar hafi verið nýflutt inn með kærastanum. Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni í New York en einn maður sem grunaður er um verknaðinn hefur verið handtekinn.

<div> <div></div> </div>

<a href="https://instagram.com/p/zjMxVtqQJY/" target="_top">We love you @mirjanapuhar. -Tyra and the Top Model family.</a>

A photo posted by Tyra Banks (@tyrabanks) on Feb 25, 2015 at 7:53pm PST

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson