Reiddist við eistnaþuklið og kýldi frá sér

Læknirinn Robert Ray birti þessa mynd á Instagram um helgina.
Læknirinn Robert Ray birti þessa mynd á Instagram um helgina. Instagram

Læknirinn Robert Ray, sem fer með hlutverk í þáttunum Dr. 90210, lenti í óskemmtilegri lífsreynslu í Brasilíu um helgina. Þegar Rey stillti sér upp með nokkrum aðdáendum fyrir framan myndavélina tók einn aðdáandinn upp á því að grípa um eistu Reys.

Maðurinn mun þá einnig hafa kallað hann „Dr. Gay“ eða „Dr. samkynhneigðan“. Rey reiddist mjög við þetta og kýldi manninn tvisvar og sparkaði í hann. Við þetta mynduðust hópslagsmál inni á veitingastaðnum þar sem atvikið átti sér stað.

Hvorki Rey né gerningsmaðurinn ætla að leggja fram kæru samkvæmt heimildum TMZ. „Ég var eitt sinn ungur og gerði vitleysur,“ sagði Rey sem birti svo mynd á Instagram sem sannar að maðurinn greip svo sannarlega um klof hans. „Ég varð óttasleginn. Ég var að verja mig.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson