Britney Spears aftur á skólabekk

Britney Spears á tvo syni með fyrrverandi eiginmanni sínum, Kevin …
Britney Spears á tvo syni með fyrrverandi eiginmanni sínum, Kevin Federline. AFP

Söngkonan Britney Spears er komin aftur á skólabekk en hún skráði sig nýverið í námskeið í algebru. Ástæðan mun vera sú að hún vill geta aðstoðað elsta son sinn, Preston, við heimanámið.

„Þetta er erfiður skóli. Og í seinustu viku þurfti hann að læra heima í þrjá tíma á hverju kvöldi,“ sagði Spears um skóla sonar síns. „Sumt af þessu er erfitt fyrir mig,“ útskýrði Spears í viðtali við PEOPLE magazine.

Spears á tvo syni, Preston sem er níu ára og Jayden sem er átta ára, með fyrrverandi eiginmanni sínum, Kevin Federline. Spears sagði frá því að þau væru með ákveðið verðlaunakerfi. „Ef þeir fá góðar einkunnir fá þeir eitt leikfang á mánuði.“

Spears er þessa stundina í sambandi með framleiðandanum Charlie Ebersol. Söngkonan viðurkenndi að hún hefði áhuga á að eignast annað barn „í framtíðinni“. „Ég væri til í að eignast eitt í viðbót. Ég er mjög ánægð með strákana mína, en kannski í framtíðinni,“ sagði Spears aðspurð hvort hún væri til í stærri fjölskyldu.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson