Dóttir Kim Basinger og Alec Baldwin í meðferð

Ireland Baldwin er farin í meðferð.
Ireland Baldwin er farin í meðferð. Instagram @irelandbbaldwin

Ireland Baldwin, dóttir leikaranna Kim Basinger og Alec Baldwin, er farin í meðferð til að takast á við „tilfinningarlegt áfall“. Þessu greindi hin 19 ára Ireland Baldwin frá á Twitter í gær.

Baldwin hóf meðferð á Soba Recovery Center-meðferðarstofnuninni í Malibu í gær. „Ég innritaði mig á Soba í tvær vikur bara til að komast undan í smá stund. Ég er ekki mikið partýljón en ég er hérna til að takast á við tilfinningalegt áfall og sæta hnitmiðaða meðferð sem ég þarf á að halda. Einn daginn mun ég deila með ykkur sögu minni,“ skrifaði ungstirnið meðal annars.

Baldwin birti stöðuuppfærslu á Twitter eftir að sá orðrómur komst á kreik að móðir hennar hafi sent hana í meðferð vegna stanslausrar drykkju. En Baldwin vill meina að hún hafi farið í meðferð af sjálfsdáðum og að móðir hennar hafi ekki komið nálægt þeirri ákvörðun.  

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson