„Í dag flaug ég með fugli í lengri tíma hann var rétt undir harnessinu hjá mér.
Þetta var frábær upplifun,“ segir Hans Kristján Guðmundsson á Facebook-síðu sinni í kvöld þar sem hann birtir myndband sem hann tók með GoPro-myndatökuvél úr svifvængju sinni yfir Brasilíu. Stór ránfugl flýgur þar hjá honum um nokkra stund.
Hans er staddur í Brasilíu sem fyrr segir þar sem hann keppir á heimsmeistaramótinu Paragliding World Cup.
Í dag flaug ég með fugli í lengri tíma hann var rétt undir harnessinu hjá mér.Þetta var frábær upplifun..... athugið að...
Posted by Hans Kristján Guðmundsson on Friday, April 17, 2015