„You don't hassel the Hoff,“ sagði skáldið og það er svo sannarlega rétt ef eitthvað er að marka nýjasta tónlistarmyndband Baywatch hetjunnar, David Hasselhoff.
Myndbandið er við lagið „True Survivor“ sem er eins og snýtt út úr níunda áratuginum. Lagið er samið fyrir kvikmynd sem heitir Kung Fury en fjármögnun hennar stendur yfir á Kickstarter. Kvikmyndin er spennu- og gamanmynd um „ofur-Kung Fu löggu í Miami sem ákveður að ferðast aftur í tímann og drepa Adolf Hitler.“
Augljóslega kemur Hitler fyrir í myndbandinu ásamt nasistaher. Einnig koma risaeðla, valkyrja vopnuð basúkku og risavaxinn víkingur fyrir af augljósum ástæðum. Leyfum myndbandinu að tala sínu máli.