Norska tónlistarveitan Tidal hifi mun opna fljótlega á Íslandi, en stærsti eigandi hennar er tónlistarmaðurinn Jay-Z, auk annarra þekktra einstaklinga úr tónlistarbransanum. Þjónusta veitunnar verður í boði fyrir borðtölvur, Android og iOS. Í tilkynningu frá félaginu segir að þjónustan sé þannig uppsett að neytendur geti hlustað á tónlistina eins og listamennirnir sköpuðu hana. Þar er verið að vísa til þess að boðið er upp á streymi í miklum gæðum.
Jay-Z vakti athygli fyrr í þessum mánuði þegar hann lét fjarlægja plötur sínar af vinsælustu tónlistarveitu heims, Spotify og tilkynnti um kaup sín á Tidal. Meðal annarra þekktra tónlistarmanna sem eru í hluthafahópnum eru Madonna, Beyoncé, Rihanna og Kanye West.