Áður óheyrðu lagi með Rihönnu lekið

Chris Brown og Rihanna voru par á sínum tíma.
Chris Brown og Rihanna voru par á sínum tíma. AFP

Í gær var áður óheyrðu lagi með Rihönnu og Chris Brown lekið á netið. Lagið, sem mun hafa verið tekið upp fyrir ári síðan, heitir Put It Up og hefur að geyma nokkuð krassandi texta.

Fyrrum elskendurnir tóku lagið upp fyrir plötu Brown sem kom út í fyrra en lagið fékk svo ekki pláss á plötunni. Ekki er vitað af hverju lagið komst ekki á plötuna.

Síðan laginu var lekið á netið hefur það fengið mikla athygli, rétt eins og ástarsamband þeirra Rihönnu og Brown fékk á sínum tíma. Rihanna og Brown hættu saman árið 2009 eftir stormasamt og ofbeldisfullt samband. Árið 2013 byrjuðu þau saman aftur, aðdáendum Rihönnu til mikillar gremju. Nokkrum mánuðum seinna voru þau hætt saman aftur.

Á meðfylgjandi myndbandi má heyra Rihönnu syngja um hversu ástfangin hún er af Brown. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson