Nemendur á öðru ári í Kvennaskólanum í Reykjavík klæddu sig upp og dönsuðu dátt á árlega peysufatadeginum í gær. Veður lék við nemendurna, sem virtust skemmta sér konunglega þegar þeir stigu dans á Ingólfstorgi.
Nú styttist í að nemendur framhaldsskólanna leggist í próflestur fyrir lokaáfangann, áður en skólaárinu lýkur. Stúdentsefni dimmitera þó fyrst, og víða mátti sjá búningaklædda nemendur í gær.