Mætti krambúleraður á góðgerðasamkomu

Skjáskot af People.com. Brad Pitt datt á andlitið um helgina.
Skjáskot af People.com. Brad Pitt datt á andlitið um helgina.

Leikarinn Brad Pitt mætti krambúleraður í andlitinu á góðgerðatónleika í Hollywood á laugardaginn. Pitt datt á aðfaranótt laugardags á heimili sínu þegar sandalarnir hans flæktust fyrir honum.

Talsmaður Pitt greindi frá þessu. „Þetta er það sem gerist þegar þú hleypur upp tröppur með fangið fullt, klæddur í sandala,“ sagði hann meðal annars.

Það stórsá á Pitt en hann lét það ekki stoppa sig í að láta gott af sér leiða. Pitt tók þátt í uppboði kvöldsins en þar voru hljóðfæri og aðrir hlutir til sölu og allur ágóðinn rann til góðgerðasamtakana Autism Speaks. Pitt bauð hæsta boð í einstakan gítar og greiddi 3,1 milljón fyrir gripinn.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson