Amy Adams gifti sig í laumi um helgina

Leikkonan Amy Adams og eiginmaður hennar Darren Le Gallo á …
Leikkonan Amy Adams og eiginmaður hennar Darren Le Gallo á Óskarnum í fyrra. AFP

Leikkonan Amy Adams gekk að eiga unnusta sinn, Darren LeGallo, við leynilega athöfn í Kaliforníu á laugardaginn.

Adams og LeGallo giftu sig loksins eftir 14 ára ástarsamband við litla athöfn þar sem aðeins fjölskylda og nánustu vinir voru viðstaddir.

Adams og LeGallo trúlofuðu sig árið 2008 og eiga eina dóttur saman. Fregnir herma að skötuhjúin hafi ætlað að gifta sig fyrir löngu en ekki getað það sökum annríkis.

„Amy og Darren ætluðu að vera búin að gifta sig en ferill hennar hefur verið á svo miklu flugi hún hefur átt erfitt með að taka sér frí,“ sagði vinur hjónanna samkvæmt heimildum Contactmusic.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson