Segir Drake hafa grátbeðið um sleikinn

Madonna fór í sleik við Drake á Coachella-hátíðinni. Drake virtist …
Madonna fór í sleik við Drake á Coachella-hátíðinni. Drake virtist ekki njóta þess að kyssa söngkonuna. AFP

Madonna smellti rennblautum kossi á Drake í atriði þeirra á Coachella-hátíðinni í apríl og viðbrögð Drakes vöktu mikla athygli vegna þess að hann virtist hrylla við kossinum. En Madonna hefur nú loksins tjáð sig um kossinn, hún segir Drake hafa grátbeðið um hann.

Madonna svaraði spurningum um kossinn á Saturday Night Online um helgina. Þar viðurkenndi söngkonan að hún sæi eftir að hafa kysst rapparann.

„Ég kyssti stelpu og mér líkaði það,“ sagði Madonna kaldhæðnislega aðspurð hvort Drake væri góður í að kyssa.

Þegar Madonna var svo beðin að gefa ungri sjálfri sér ráð þá sagði hún: „Ekki kyssa Drake. Alveg sama hversu oft hann grátbiður þig.“

Drake greindi frá því eftir Coachella-hátíðina að hann hefði notið þess að kyssa Madonnu en hann hefði hryllt við varaglossinu sem hún var með.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson