Er þetta virkilega Neville litli?

Leikarinn Matthew Lewis hefur breyst mikið síðan hann lék í …
Leikarinn Matthew Lewis hefur breyst mikið síðan hann lék í Harry Potter.

Leikarinn Matthew Lewis, sem fór með hlutverk  Neville Longbottom í Harry Potter-myndunum, hefur aldeilis breyst mikið síðan fyrsta myndin um galdrastrákinn Potter kom út árið 2001. Lewis fækkaði nýverið fötum fyrir nýjasta tölublað Attitude og ljósmyndirnar af honum hafa vakið mikla athygli.

Hinn 25 ára Lewis er í flottu formi og er ófeiminn við að sýna það. Hann prýðir forsíðu júní-tölublaðs Attitude og inni í blaðinu má svo finna viðtal við leikarann ásamt myndaþætti.

Lewis þykir fjallmyndarlegur en hann er hissa á allri athyglinni sem hann er að fá. „Ég bjóst ekki við þessu. Ég hef aldrei talið sjálfan mig vera myndarlegan, bara í meðallagi,“ sagði hinn hógværi Lewis.

Leikarinn Matthew Lewis á forsíðu Attitude.
Leikarinn Matthew Lewis á forsíðu Attitude. www.attitude.co.uk
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson