Áttu-strákarnir fara nú í sína sjöttu keppni. Þessar keppnir hafa slegið í gegn á vefnum okkar og er þessi engin undantekning frá því. Nú keppast þeir um að ná að líma sem flesta „post it“-miða á fólk í rúllustiga í Smáralindinni. Það er vægast sagt magnað að sjá hversu marga miða þeir geta límt á fólk án þess að fólk taki eftir þeim. Það sést langar leiðir að strákarnir eru misgóðir í þessu en útkoman er engu að síður sprenghlægileg.
Ekki láta þessa keppni né allar hinar keppnirnar framhjá þér fara. Ef þú hefur misst af einhverjum keppnum er ekkert mál að finna þær undir flipanum www.mbl.is/attan og einnig er hægt að horfa á alla þættina í heild sinni undir sama flipa.
<iframe allowfullscreen="" frameborder="0" height="360" src="/mblplayer/i/163295/" style="border: 0;" width="640"></iframe><div id="embedded-remove"> </div>Fylgstu með Áttunni
www.facebook.com/attanofficial
www.instagram.com/attan_official
SnapChat: Attan_official
Watchbox: Attan_offcial