Hrútar vinna til verðlauna í Cannes

Mynd/Halldór Kolbeinsson

Kvikmyndin Hrútar, í leikstjórn Gríms Hákonarsonar, vann rétt í þessu til Un Certain Regard verðlaunana í samnefndum flokki á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Þetta er í fyrsta sinn í 68 ára sögu keppninnar sem íslensk kvikmynd í fullri lengd vinnur til verðlauna á hátíðinni. 

Í Un Certain Regard flokknum eru veitt verðlaun í nokkrum flokkum og fékk Hrútar sjálf Un Certain Regard-verðlaunin (Prize of Un Certain Regard). Forseti dómnefndar var leik- og kvikmyndagerðarkonan Isabella Rossellini.

Hrútar öttu kappi við 18 aðrar kvikmyndir í Un Certain Regard flokknum.

„Þetta er gríðarlegur heiður fyrir Grím, allt okkar góða fólk sem vann að myndinni með okkur, íslenska kvikmyndagerð og ekki síst íslensku sauðkindina,“ segir Grímar Jónsson, framleiðandi Hrúta, sem staddur er í Cannes, ásamt Grími leikstjóra og handritshöfundi.

Hrútar hafa fengið glimrandi viðtökur allt frá því að myndin var frumsýnd á frönsku kvikmyndahátíðinni fyrir um viku síðan en þá risu áhorfendur meðal annars úr sætum og klöppuðu fyrir aðstandendum hennar í einar tíu mínútur að sýningu lokinni.

Myndin hefur hlotið lofsamlega dóma í mörgum af stærstu og virtustu kvikmyndatímaritum heims, tímaritum á borð við Hollywood Reporter, Variety og Screen. Þá fékk hún fimm stjörnur í tímaritinu The Upcoming.

Hrútar verða frumsýnd hér á landi á miðvikudaginn kemur en fer í almenna sýningu á fimmtudaginn.

Hrútar er önnur íslenska kvikmyndin sem kemst í Un Certain Regard keppnina. Árið 1993 komst hin goðsagnakennda mynd Sódóma Reykjavík eftir Óskar Jónasson þangað.

Kvikmyndin Stormviðri eftir Sólveigu Anspach var valin í Un Certain Regard árið 2003 en hún var frönsk framleiðsla og Dagur Kári Pétursson var valinn með dönsku myndina Voksne Mennsker árið 2005.

Grímur Hákonarson leikstýrir og skrifar handritið að Hrútum. Aðalframleiðandi myndarinnar er Grímar Jónsson fyrir Netop Films og meðframleiðendur eru hin dönsku Ditte Milsted og Jacob Jarek fyrir Profile Pictures. Þá er Þórir Snær Sigurjónsson einn af framleiðendum myndarinnar. Framleiðslustjórn er í höndum Evu Sigurðardóttur. Með aðalhlutverk fara Sigurður Sigurjónsson og Theodór Júlíusson. Stjórn kvikmyndatöku er í höndum Norðmannsins Sturla Brandth Grøvlen og Kristján Loðmfjörð sér um klippingu myndarinnar. Tónlist myndarinnar er samin af Atla Örvarssyni og hljóðhönnun er í höndum Huldars Freys Arnarssonar og Björns Viktorssonar.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson