Stefnir 50 Cent vegna kynlífsmyndbands

Rapparinn 50 Cent stendur í miklum erjum þessa dagana, bæði …
Rapparinn 50 Cent stendur í miklum erjum þessa dagana, bæði við Rick Ross og fyrrverandi kærustu hans. AFP

Lastonia Leviston, fyrrverandi kærasta rapparans Rick Ross, hefur stefnt rapparanum 50 Cent vegna kynlífsmyndbands sem hann á að hafa lekið á netið. 

Myndbandið lak á netið fyrir fimm árum síðan og á að sýna Leviston stunda mök með öðrum manni. Andlit mannsins var klippt út úr myndbandinu. Alls sáu þrjár milljónir manna myndbandið þegar það var á netinu.

Nú hefur 50 Cent hins vegar líka stefnt Rick Ross, fyrrverandi kærasta Leviston, fyrir að hafa lekið myndbandinu. Segist 50 Cent hafa sett myndbandið á netið en að Rick Ross hafi séð um að deila því.

Rick Ross og 50 Cent hafa lengi eldað saman grátt silfur. Erjur þeirra hófust árið 2009 þegar þeir lentu saman af óþekktum ástæðum. Gaf Ross síðan út lag þar sem hann níðir 50 Cent áður en sá síðarnefndi svaraði með laginu „Officer Ricky“ og vísar þar í fortíð Ross sem fangavörður.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson