Fólk ætti kannski að hugsa sig tvisvar um áður en það sækir stefnumótaforrit á borð við Tinder því slík forrit eru sögð bera ábyrgð á því að kynsjúkdómasmit eru að færast verulega í aukana.
Talsmenn heilbrigðisþjónustunnar í Rhode Island greindu nýverið frá því að fólk sem starfar innan heilbrigðisgreinast hefur orðið vart við mikla aukningu á kynsjúkdómasmiti frá árinu 2014. Þessa aukningu má tengja við vinsældir stefnumótaforrita á borð við Tinder, Grindr og Hinge.
Fólk sem notar þessi forrit óspart hefur gjarnan tileinkað sér varasama hegðun í sambandi við kynlíf. Með þessum forritum á fólk þá auðveldara með að finna einstaklinga sem hafa áhuga á kæruleysislegu kynlífi og fólk virðist nýta sér það grimmt samkvæmt tilkynningunni frá heilbrigðisþjónustu Rhode Island.
Samkvæmt tilkynningunni hafa tilfelli þar sem fólk greinist með sárasótt aukist um 79% á seinasta ári. Fólk er einnig að greinast með lekanda og HIV-veiruna í auknu mæli.