„Hann stundaði kynlíf með vinkonu minni“

Kourtney Kardashian, Scott Disick og börnin.
Kourtney Kardashian, Scott Disick og börnin. mbl.is/AFP

Samband raunveruleikastjarnanna Kourtney Kardashian og Scott Disick hefur hangið á bláþræði í mörg ár. Ýmis vandamál hafa komið upp á milli þeirra síðan þau byrjuðu saman árið 2006 en núna gæti sambandið verið á enda. Ung kona hefur nú stigið fram, hún segir Scott Disick hafa haldið framhjá Kourtney með vinkonu sinni á dögunum.

„Hann stundaði kynlíf með vinkonu minni alla vikuna,“ sagði konan í viðtali við In Touch Weekly. „Hún vakti í fjóra daga og hugsaði um hann á meðan hann var drukkinn og á eiturlyfjum. Kourtney hringdi stanslaust í hann en hann svaraði ekki.“ Konan segir Scott hafa dvalið á Trump Soho-hótelinu í New York þegar þetta átti sér stað en þá var Kourtney stödd í Los Angels með börnin þeirra.

Kourtney og Scott eiga saman þrjú börn á aldrinum sex mánaða til fimm ára. „Hún notar yfirleitt samfélagsmiðla til að hylma yfir með honum en hún óskaði honum ekki einu sinni til hamingju með feðradaginn,“ sagði konan að lokum sem er viss um að sambandið sé á enda.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson