Eru að skilja vegna Jennifer Lopez

Ben Affleck og Jennifer Garner eru að skilja og einhverjir …
Ben Affleck og Jennifer Garner eru að skilja og einhverjir kenna söngkonunni Jennifer Lopez um. mbl.is/AFP

Skilnaður Bens Afflecks og Jennifer Garner hefur vakið mikla athygli í fjölmiðlum undanfarið. Miklar getgátur hafa verið uppi um af hverju hjónin eru að skilja en einhverjir vinir þeirra segja ástæðuna vera vináttu Afflecks og söngkonunnar Jennifer Lopez.

Ben Affleck og Jennifer Lopez voru trúlofuð frá árinu 2002 til ársins 2003. Affleck er sagður hafa verið góðvinur Lopez síðan þau hættu saman þrátt fyrir að Garner hafi alla tíð verið ósátt við það.

„Fólk er alltaf að tala um samband J-Lo og Afflecks, fólk heldur að þau muni byrja saman aftur. Þau döðruðu mikið á óskarsverðlaunahátíðinni og eru alltaf í tölvupóstssamskiptum. Jennifer Garner hefur aldrei fílað það,“ sagði vinur þeirra hjóna í viðtali við dagblaðið The Sun.

Vinur hjónanna sagði einnig að Garner væri búin að fá sig fullsadda á áfengisneyslu Afflecks en leikarinn fór í meðferð árið 2011 og hætti að drekka. Hann mun hafa byrjað að drekka aftur þegar hann undirbjó sig fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Gone Girl. „Þetta hefur verið í aðsigi í langan tíma, það er kraftaverk að Garner skyldi þrauka svona lengi.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson