Billy Joel gengur óvænt í hjónaband

Billy Joel við píanóið.
Billy Joel við píanóið. AFP

Poppstjarnan Billy Joel og Alexis Roderick, kærasta hans til langs tíma, gengu óvænt í hjónaband í gær. Þau létu vita í þjóðhátíðargleðskap í gær.

Athöfnin fór fram á landareign Joels, þar sem Andrew Cuomo, ríkisstjóri New York, gaf þau saman.

Joel og Roderick „komu fólki á óvart í gleðskapnum þegar þau tilkynntu um hjúskapinn í hópi náinna vina og fjölskyldu,“ segir í yfirlýsingu frá Claire Mercuri, útgefanda Billy Joel.

Billy Joel, sem er 66 ára, og Alexis Roderick, sem er á fertugsaldri, eiga von á sínu fyrsta barni eftir nokkra mánuði. Roderick er fjórða eiginkona Joels, en samband þeirra hófst árið 2009.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson