Ashton Kutcher og Mila Kunis gift

Asthon Kutcher og Mila Kunis hafa gengið í hjónaband.
Asthon Kutcher og Mila Kunis hafa gengið í hjónaband. mbl.is/EPA

Þau Ashton Kutcher og Mila Kunis giftu sig við leynilega athöfn síðastliðna helgi. Kutcher og Kunis eru þekkt fyrir að fara hljóðlega með persónuleg mál sín og hafa fréttir um hjónaband þeirra verið á reiki. 

Heimildamaður People.com mun hafa staðfest á dögunum að parið hafi gengið í hnapphelduna en ekki hefur verið getið hvar og hvenær athöfnin fór fram. Fram kemur að athöfnin hafi verið lítil en aðeins nánustu vinir og fjölskylda voru viðstödd.

Kutcher og Kunis kynntust við tökur á þættinum That 70s Show en byrjuðu ekki saman fyrr en Kutcher skildi við fyrrverandi eiginkonu sína, Demi Moore, árið 2011. Þau trúlofuðust svo í febrúar 2014 og hinn 14. október sama ár eignuðust þau stúlkuna Wyatt Isabelle.

Mbl.is hefur áður greint frá ætluðu hjónabandi þeirra Kutcher og Kunis en það var þegar spjallþáttastjórnandinn James Cor­d­en í The Late Late Show taldi Kunis hafa staðfest að hún væri gift. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson