Josh Harnett á von á barni

Leikarinn Josh Harnett á vin á sínu fyrsta barni ásamt …
Leikarinn Josh Harnett á vin á sínu fyrsta barni ásamt kærustu sinni. AFP

Leikarinn Josh Harnett á nú von á sínu fyrsta barni með kærustu sinni Tamsin Egerton. Parið hefur verið saman síðan árið 2012 en þau kynntust við tökur á myndinni The Lovers. Þar léku þau par og byrjuðu svo að stingja saman nefjum í kjölfarið.

Á vef Contactmusic kemur fram að Harnett sé þekktur fyrir að fara hljóðlega með persónuleg mál sín og því hafi parið náð að vera lítið í slúðurmiðlunum ytra. Í viðtali fyrr á árinu sagði Harnett: „með því að hleypa fólki of nálægt sér fer maður að hafa áhyggjur af því hvernig það sér mann sem getur svo orðið til þess að maður fer að reyna að breyta sér og missi tökin.“

Harnett hefur átt í ástarsambandi við margar stjörnur eins og leikkonurnar Scarlett Johansson, Amöndu Seyfried og ofurfyrirsætuna Helenu Christiansen. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson