Hjónaband Kate Moss að hruni komið

Jamie Hince og Kate Moss hafa sést lítið saman.
Jamie Hince og Kate Moss hafa sést lítið saman. AFP

Hjónaband ofurfyrirsætunnar Kate Moss og eiginmanns hennar, rokkarans Jamies Hince, er að líða undir lok. Parið gifti sig árið 2011 en vinir hjónanna segja að nú sé hjónabandið að hruni komið og afar fátt sem geti breytt því.

Heimildarmaður sagði í viðtali við The Sun: „Hjónabandi þeirra er líklega lokið. Það er ekkert hægt er gera lengur til að reyna að bjarga því. Hince bíður þess nú að fá skilnaðarpappírana í hendurnar. Hvorugt þeirra er að drífa sig að þessu en þau vita bæði að þetta er búið. Þau vita að þau þurfa að gefa frá sér yfirlýsingu en eru samt ekki þvinguð til þess.“

Hjónin hafa lítið sést saman undanfarið. Hince mætti einn á tónlistarhátíðina Glastonbury og Moss ein á tískuvikuna í París svo dæmi séu tekin.

Þá segja erlendir slúðurmiðlar að kveikjan að sambandsslitunum hafi verið afbrýðisemi Moss. Hince eyðir miklum tíma með fyrirsætunni og plötusnúðnum Lady Mary Charteris og eiginmanni hennar Robbie Furz og á það að hafa reitt Moss til reiði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson