Uppselt á Jessie J - eða hvað?

Jessie J er vinsæl hér á landi.
Jessie J er vinsæl hér á landi. Ljósmynd/wikipedia

Uppselt er á tónleika söngkonunnar Jessie J sem fram fara í Laugardalshöll 15. september. Þetta staðfestir Guðbjartur Finnbjörnsson, sem stendur fyrir tónleikunum, við mbl.is.

„Það er uppselt, seldist upp á rúmum sólarhring og það verða ekki aukatónleikar,“ segir Guðbjartur við mbl.is. Hann hélt þó eftir nokkrum miðum þannig að fólk þarf ekki að örvænta, það á ennþá möguleika á að næla sér í miða.

„Það eru 50-100 miðar eftir sem fara örugglega í sölu í næstu viku.“ Guðbjartur segir að fólk geti haft samband við midi.is til að koma sér á biðlista vegna miðanna. „Ég veit að þessir miðar sem eru eftir fara einn tveir og bingó.“ 

Ekki fengust nánari skýringar á því hvers vegna miðunum var haldið eftir né biðlistafyrirkomulaginu.

Ekki náðist í midi.is við vinnslu fréttarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson