Smith vísar orðrómi um skilnað á bug

Will Smith og Jada Pinkett-Smith.
Will Smith og Jada Pinkett-Smith. mbl.isl/COVER

Leikarinn Will Smith hefur nú vísað orðrómi um skilnað sinn og eiginkonu sinnar Jada Pinkett Smith á bug. Smith er ekki vanur að tjá sig um fréttir slúðurmiðlanna í Hollywood en í þetta skipti gat hann ekki hamið sig.

Samkvæmt vefnum Independent birti hann innlegg síðastliðinn mánudag á Facebook síðu sinni þar sem hann vísaði ásökunum á bug. Hann sagði að parið væri ekki að skilja en ef svo væri myndi hann lofa að tilkynna það sjálfur.

Þá fylgdi eiginkona hann innlegginu eftir á Twitter síðu sinni og sagði, „kóngurinn minn hefur talað.“

Jada Pinkett Smith hefur verið opnari en eiginmaður sinn um hjónaband þeirra og sagði í viðtali við Howard Stern í júní að Will mætti gera hvað sem væri svo lengi sem að hann gæti horft í spegill eftir það og viðurkennt að gjörðir hans hafi verið réttar.

„Ég er ekki þannig kona sem trúir að maður geti bara verið hrifinn af einni konu, það er ekki raunhæft. Þó svo að honum finnist aðrar konur aðlagandi þýðir það ekki að hann sé að fara gera eitthvað í því.“

<blockquote class="twitter-tweet">

My king has spoken.

— Jada Pinkett Smith (@jadapsmith) <a href="https://twitter.com/jadapsmith/status/628302260565512192">August 3, 2015</a></blockquote><script async="" charset="utf-8" src="//platform.twitter.com/widgets.js"></script><div id="embedded-remove"> </div>
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson