Telur hundinn sinn hafa „framið sjálfsvíg“

Pamela Anderson er mikill dýravinur.
Pamela Anderson er mikill dýravinur. AFP

Fyrirsætan og leikkonan Pamela Anderson telur hundinn sinn hafa „framið sjálfsvíg“ vegna þess að honum líkaði svo illa við fyrrverandi eiginmann Anderson, Rick Salomon.

Hin 47 ára Anderson var miður sín þegar hundurinn hennar, Jo-Jo, drapst fyrr á þessu ári. Hún er viss um að fyrrum eiginmanni hennar sé um að kenna. Þessu greindi fyrirsætan frá í viðtali við Sunday Times Style. „Ég held að hann hafi framið sjálfsvíg vegna þess að honum líkaði illa við eiginmann minn. Hann leit á mig einn daginn og sagði: „ég veit ekki hvað þú ert að gera en ég get þetta ekki lengur.“,“ útskýrði Anderson.

Hjónaband þeirra Anderson og Salomon hefur verið stormasamt síðan þau giftu sig árið 2007. Tveimur mánuðum eftir að þau gengu í það heilaga var hjónabandið ógilt en árið 2014 giftu þau sig aftur en skildu svo fyrr á þessu ári.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson