Fyrrverandi hennar Avril Lavigne genginn út

Deryck Whibley er genginn út.
Deryck Whibley er genginn út. skjáskot

Fyrrverandi eiginmaður söngkonunnar Avril Lavigne, tónlistamaðurinn Deryck Whibley, gifti sig um helgina. Nýja eiginkonan heitir Ariana Cooper og er fyrirsæta.

Whibley, sem er þekktastur fyrir að vera frontmaður í hljómsveitinni Sum 41, og Cooper gengu í það heilaga á sunnudaginn og var athöfnin lítil. „Athöfnin var róleg. Þarna var fiðluspil og afslappað andrúmsloft,“ sagði heimildamaður People.com. Eftir athöfnina skáluðu hjónin svo í óáfengan eplasíder.

Whibley er greinilega búinn að snúa blaðinu við en fyrr á þessu ári steig hann fram og greindi frá því að hann hefur glímt við alvarleg veikindi sökum of mikillar áfengisdrykkju.

Whibley og Lavigne voru gift frá árinu 2006 til 2010.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson