Leikkonan Amanda Peterson fannst látin á heimili sínu í júlí 43 ára að aldri. Nú er komið í ljós að hún lést af völdum of stórs skammts lyfseðilsskyldra lyfja. Talið er að hún hafi tekið of stóran skammt fyrir mistök.
Samkvæmt heimildum TMZ hafði Petersen tekið inn mikið magn lyfseðilsskyldra lyfja áður en hún andaðist en stuttu áður en hún lést gekkst hún undir legnám og sömuleiðis hafði hún glímt við ýmis veikindi.
Peterson er þekktust fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Can't Buy Me Love sem kom út árið 1987. Leikarinn Patrick Dempsey lék á móti henni í þeirri mynd. Peterson skilur eftir sig eiginmann og tvö börn.