Við tökur á kvikmyndinni Fyrir framan annað fólk var fyrirhugað að keyra um með Maserati á kerru þar sem Hilmir Snær og félagar myndu syngja ítölsk lög. Mistök voru þó gerð við mælingu á bílnum og þegar keyra átti bílinn upp í kerruna þurfti að taka skjótar ákvarðanir. Mikið var í húfi því hver klukkutími við kvikmyndatökur er mjög dýr ásamt því að dýrt hefði verið að skemma bílinn.
Myndin gerist að stórum hluta á auglýsingastofunni PIPAR\TBWA og fjallar um Hubert (Snorri Engilberts) sem er grafískur hönnuður. Myndin er rómantísk kómedía þar sem Óskar Jónasson er leikstjóri og helstu leikarar eru: Snorri Engilberts, Hafdís Helga Helgadóttir, Hilmir Snær Guðnason, Svandís Dóra Einarsdóttir. Auk þess kemur Bubbi Morteins fram í myndinni og persóna hans spilar stóra rullu í söguþræðinum. Pálmi Gests og Lilja Pálmadóttir eru svo í aukahlutverkum.