Svaf hjá tveimur samleikurum

Ljósmynd/Wikipedia

Bandaríska leikkonan Tori Spelling viðurkenndi í þættinum Lifetime í gærkvöldi að hún hafi sofið hjá tveimur mótleikurum sínum við gerð þáttanna Beverly Hills, 90210.

Þættirnir sem voru eitt það vinsælasta sem sýnt í bandarísku sjónvarpi á tíunda áratugnum og Tori Spelling svaraði ýmsu í þættinum í gær. Til að mynda játaði hún að hafa sængað hjá bæði Brian Austin Green og Jason Priestly og að hafa kysst Luke Perry á meðan gerð þáttanna stóð.

Tekið skal fram að hún var tengd við lygamæli á meðan hún svaraði spurningum þáttastjórnanda í gærkvöldi. Green var unnusti hennar á þessum tíma en hún hefur farið leynt með að hafa sofið hjá Priestly. „Helmingur vina minna veit ekki einu sinni af þessu,“ sagði Spelling í þættinum í gær, samkvæmt frétt People.

Spelling, 42 ára, er gift Dean McDermott í dag og eiga þau fjögur börn. Hún ræddi kossinn frá Perry í þættinum en hún segir að hann hafi skipt sig miklu máli en hún var átján ára á þessum tíma. Þau hafi hins vegar aldrei sofið saman.

Frétt People

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson