Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, braut nýverið farsímann sinn. Síminn sést límdur og brotinn á mynd frá AFP fréttaveitunni frá fundi forsætisráðherra Norðurlandanna í Danmörku. Hann virkar þó enn.
Ekki er vitað hvort Sigmundur hafi nýtt sér ferðina til að kaupa sér nýjan síma eða yfir höfuð hvort hann ætli að endurnýja farsímann. Farsímar nútímans eru mjög viðkvæmir fyrir höggi og brotna við minnsta tilefni og eru flestir með sína síma í ódýrum hulstrum. Ekki er vitað hvort Sigmundur hafi misst símann eða hvernig brotið átti sér stað.
Ekki náðist í Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmann Sigmundar, við vinnslu fréttarinnar.