Irina Shayk lögð í einelti

Bradley Cooper og Irina Shayk eru að slá sér upp.
Bradley Cooper og Irina Shayk eru að slá sér upp. mbl.is/AFP

Ofurfyrirsætan Irina Shayk þótti greinilega ekki alltaf vera íðilfögur, því hún hefur greint frá því að henni hafi verið strítt á unglingsárunum líkt og fram kemur í frétt Daily Mirror.

„Þegar ég var yngri var mikið gert grín af mér. Ég var hávaxin, dekkri yfirlitum og með þykkari varir en samnemendur mínir. Ég var kölluð spýtan því ég gekk alltaf um á háum hælum.“

„Ég var alltaf í pilsi í skólanum, aldrei í buxum, og strákarnir sögðu: „sjáið spýtuna labbandi um á háu hælunum sínum“ það var sorglegt.“

Irina þykir af mörgum vera ein fegursta kona heims, en hún hefur meðal annars prýtt forsíðu Sports Illustrated ásamt því að sýna undirföt fyrir Victoria‘s Secret. Fyrirsætan segist nú kunna að meta útlit sitt og að besta ráðið til að viðhalda ljómanum sé góður nætursvefn.

„Besta ráðið er að fá nægan svefn, svona 12 klukkutíma. Þegar ég sef ekki nóg verð ég úrill og brjáluð.“

Shayk sem sleit nýlega samvistum við fótboltakappann knáa, Christiano Ronaldo, er um þessar mundir í sambandi við leikarann Bradley Cooper.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson