Jennifer Aniston hneykslar aðdáendur

Jennifer Aniston vaknar upp við vondan draum í auglýsingu fyrir …
Jennifer Aniston vaknar upp við vondan draum í auglýsingu fyrir flugfélagið Emirates. Skjáskot af Youtube

Jennifer Aniston hneykslaði aðdáendur sína á dögunum eftir að hafa komið fram í auglýsingu fyrir flugfélagið Emirates.

Í auglýsingunni, sem er á gamansömum nótum, má sjá Aniston vafra um flugvél í slopp einum fata í leit að sturtu. Henni til mikillar hrellingar kemst hún að því að engin sturta er um borð, og hvað þá bar. Henni standi þó til boða að fá poka af hnetum og handklæði.

Aniston vaknar síðan í huggulegu fleti áður en hún skellir sér á barinn um borð í flugvél Emirates þar sem hún talar fjálglega um þessa hræðilegu martröð sem hún fékk.

Auglýsingin hefur vakið afar misjöfn viðbrögð, líkt og fram kemur í frétt Daily Mail, og telja margir hana vera yfirlætisfulla auk þess að gera lítið úr efnalitlu fólki.

Meðal ummæla sem sjá má við auglýsinguna eru:

„Mér finnst ég svo fátækur eftir að hafa horft á þetta."

„Eru líka þrælar frá Pakistan um borð sem gefa manni fótanudd?“

Auglýsinguna sjálfa má sjá hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson