Kylie Jenner afbrýðisöm út í systur sína

Systurnar Kendall og Kylie Jenner styðja við bakið á hvor …
Systurnar Kendall og Kylie Jenner styðja við bakið á hvor annarri. mbl.is/AFP

Kendall Jenner hefur greint frá því að yngri systir hennar, Kylie, hafi á tímabili gramist athyglin sem hún fékk, eins og fram kemur á vef Contactmusic. Kendall hefur getið sér gott orð sem fyrisæta og hefur meðal annars gengið tískupallana fyrir Chanel og Balmain ásamt fleirum.

„Hún er ljón þannig að hún elskar athygli. Á vissum tímapunkti þegar við vorum yngri fór það fyrir brjóstið á henni að ég fengi athygli vegna fyrirsætustarfanna. Ég held að það sé eðlilegt fyrir yngri systur að verða stundum öfundsjúkar. Ég var sjálf stundum afbrýðisöm út í hana.“

Nú segjast stúlkurnar þó vera perluvinkonur, enda hafa þær báðar hlotið frama innan tískuheimsins og hafa jafnvel unnið saman að eigin fatalínu sem ber nafnið Kendall og Kylie.

„Nú elskar hún það sem ég geri og styður mig. Hún er mikið fyrir tísku og sendir mér alltaf skilaboð þegar ég tek þátt í stórri sýningu til að segja mér að þetta hafi verið geðveikt, eða til að spyrja mig hvernig fötin hafi verið.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson