Mjög er slúðrað um það á erlendum slúðurfréttavefjum að leikarinn Brad Pitt hafi sett eiginkonu sinni, leikkonunni og leikstjóranum, Angelinu Jolie, stólinn fyrir dyrnar vegna átröskunar hennar.
Herma fregnir að hann hafi sagt henni að annað hvort verði hún að borða meira og bæta á sig eða hjónabandinu sé lokið.
Samkvæmt Hollywood Life er Jolie afar grönn og aðeins tæp 38 kíló að þyngd. Pitt sé mjög áhyggjufullur vegna þessar og að hann hafi hvatt hana til þess að leita sér hjálpar. Hins vegar hunsi hún ráðleggingar hans og að Pitt hafi fengið nóg.
Í frétt Christian Post kemur fram að Pitt ætli að yfirgefa Jolie og taka börnin frá henni ef hún fari ekki í meðferð vegna átröskunarinnar. Ekki er vitnað í nafngreindar heimildir heldur alltaf talað um heimildarmenn nátengda þeim hjónum. Pitt á að hafa sagt Jolie að hann geti ekki hugsað sér að börnin búi við þessar aðstæður og hann geti ekki lengur staðið hjá og horft á móðir barna hans veslast upp og deyja.