Fólk hvatt til að sniðganga Zoolander 2

Benedict í hlutverki sínu sem Ali í Zoolander 2.
Benedict í hlutverki sínu sem Ali í Zoolander 2. Skjáskot af Youtube

Nokkrir dagar eru síðan stiklan úr Zoolander 2 var gerð opinber, en nú hefur verið blásið til mótmæla og fólk hvatt til að sniðganga myndina sökum þess að hún þykir sýna transfólk í neikvæðu ljósi. Vefurinn Contactmusic greindi frá þessu.

Undirskriftarlistinn var stofnaður á síðunni change.org og hafa, þegar þetta er skrifað, rúmlega 9.000 manns skrifað undir.

Við undirskriftasöfnunina stendur ritað:

„Karakter Cumberbatch er augljóslega sýndur sem yfirdrifinn og ýktur þar sem gys er gert að trans- og kynsegin fólki. Þetta jafnast á við það að nota „blackface“ [þar sem andlit hvítra leikara voru máluð svört til að gera grín að hörundsdökku fóki].“

Zoolander 2 verður tekin til sýninga 12. febrúar á næsta ári, en auk Ben Stillers og Owen Wilsons munu Justin Bieber, Kim Kardashian Kanye West og fleiri stórstjörnur fara með hlutverk í myndinni.

Kynningarstiklu myndarinnar má sjá hér að neðan.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson