Lék Craig í The Force Awakens?

Sögur segja að breski leikarinn Daniel Craig hafi brugðið sér …
Sögur segja að breski leikarinn Daniel Craig hafi brugðið sér í hlutverk stormsveitarmanns í The Force Awakens. AFP

Í sumar fóru á kreik sögusagnir þess efnis að Daniel Craig myndi taka að sér lítið hlutverk í nýjustu Stjörnustríðsmyndinni, The Force Awakens. Sjálfur neitaði leikarinn orðrómnum staðfastlega, en nú hefur hann þó  fengið byr undir báða vængi á ný.

Daily Mail hefur eftir ónefndum heimildarmanni sem starfar hjá Disney að Craig hafi tekið að sér lítið aukahlutverk í myndinni. Hann segir Craig hafa hitt leikstjórann, J.J. Abrams, í Pinewood upptökuverinu á meðan tökur á Spectre stóðu yfir.

„Þeir suðu saman  dulargervið. Ég veit ekki hvaða senu um ræðir, en Daniel Craig bregður sér í hlutverk stormsveitarmanns vegna þess að þeir klæðast hjálmum og þekkjast ekki.“

Heimildamaðurinn telur líklegt að umrætt atriði sé að finna í upphafi kvikmyndarinnar, þar sem hinir hvítklæddu hermennirnir sjást ganga fylktu liði inn í þorp eitt.

Hver veit nema Daniel Craig leynist á þessari mynd.
Hver veit nema Daniel Craig leynist á þessari mynd. Skjáskot Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú geislar af hamingju og hefur jákvæð áhrif á umhverfi þitt. Láttu freistingar lönd og leið og líttu ekki upp fyrr en þú hefur lokið því sem fyrir liggur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú geislar af hamingju og hefur jákvæð áhrif á umhverfi þitt. Láttu freistingar lönd og leið og líttu ekki upp fyrr en þú hefur lokið því sem fyrir liggur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg