Ríkisstjóri Kaliforníu hefur náðað Hollywood-leikarann Robert Downey Jr. vegna fíkniefnadóms sem hann hlaut árið 1996. Jerry Brown sagði að Downey Jr. hefði „greitt skuld sína við samfélagið og unnið sér inn fulla og skilyrðislausa náðun.“
Járnmaðurinn hlaut upphaflega dóm fyrir vörslu fíkniefna eftir að hann var handtekinn í Los Angeles og lögregla fann heróín, kókaín og skotvopn í bifreið hans. Hann hlaut skilorsbundinn dóm en braut ítrekað gegn skilmálum skilorðsins og var sendur í fangelsi 1999.
Hann afplánaði minna en ár og var veitt reynslulausn til tveggja ára.
Ríkisstjórinn Brown, sem náðaði 91 einstakling í dag, sagði að Downey Jr. hefði lifað heiðvirðu lífi frá því hann var laus af skilorði árið 2002 og verið löghlýðinn borgari.
Sakaskrá leikarans stendur óbreytt en með náðuninni endurheimtir hann ákveðin réttindi, t.d. kosningarétt sinn.