Playboy-fyrirsæta látin

Fyrirsætan Katie May er látin, 34 ára að aldri.
Fyrirsætan Katie May er látin, 34 ára að aldri. Skjáskot Instagram / Katie May

Playboy-fyrirsætan Katie May er látin, 34 ára að aldri. Banamein hennar var heilablóðfall.

May hafði á ferli sínum meðal annars setið fyrir hjá tímaritunum Playboy og Sports Illustrated. Þá hafði hún getið sér gott orð á samfélagsmiðlum og meðal annars verið krýnd drottning samskiptaforritsins Snapchat af tímaritunum GQ og Sports Illustrated.

Bróðir stjörnunnar, Stephen May, sendi frá sér tilkynningu þar sem hann staðfesti fréttirnar.

„Það tekur mig sárt að staðfesta að Katie May, móðir, dóttir, systir, vinkona, kaupsýslukona, fyrirsæta og samfélagsmiðlastjarna, lést eftir að hafa fengið hörmulegt heilablóðfall á mánudaginn.“

Öndunarvél May var aftengd í gær og lést hún í faðmi fjölskyldu og vina. Hún lætur eftir sig sjö ára dóttur.

Frétt Mirror

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson