Hver þeirra er mamman?

Myndin var tekin þegar móðir tvíburanna sótti þær í skólann.
Myndin var tekin þegar móðir tvíburanna sótti þær í skólann. Skjáskot/Twitter

Nýlega tók Kaylan Mahomes sjálfsmynd með tvíburasystur sinni, Kyla og móður þeirra og ruglaði notendur samfélagsmiðla svo um munaði.

Við myndina skrifaði Mahomes „Mamma, tvíburi og ég.“

Tvíburarnir eru 16 ára menntaskólanemar en engu að síður minnir myndin meira á þríburamynd en mæðgnamynd og fljótlega fór veraldarvefurinn að reyna að komast að því hver þeirra væri mamman.

Myndin hefur ferðast víða og meðal annars verið deilt með myllumerkinu #blackdontcrack sem vísar til þess að ekki ein einasta hrukka er sjáanleg á andliti móðurinnar.

En hver er mamman?

Í nýlegu útvarpsviðtali uppljóstraði fjölskyldan því að móðirin, Tina sem er 35 ára, væri lengst til vinstri á myndinni.

Og hvernig heldur hún sér svona unglegri? „Ég reyni að drekka mikið vatn, ég reyni að halda mér frá stressi. Ég einbeiti mér bara mikið að tilfinningalegri innri fegurð.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú geislar af hamingju og hefur jákvæð áhrif á umhverfi þitt. Láttu freistingar lönd og leið og líttu ekki upp fyrr en þú hefur lokið því sem fyrir liggur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú geislar af hamingju og hefur jákvæð áhrif á umhverfi þitt. Láttu freistingar lönd og leið og líttu ekki upp fyrr en þú hefur lokið því sem fyrir liggur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg