Kaffærir Aniston í gjöfum

Jennifer Aniston og eiginmaður hennar, leikarinn Justin Theroux.
Jennifer Aniston og eiginmaður hennar, leikarinn Justin Theroux. AFP

Justin Theroux, eiginmaður Jennifer Aniston, hefur greint frá því að hann taki hlutverk sitt heldur betur alvarlega þegar kemur að Valentínusardeginum.

„Þetta er svakalegt. Við höldum jólin, síðan afmælið hennar og svo er það Valentínusardagurinn. Þannig að hún fær góða tvo mánuði troðfulla af gjöfum. Ég er að hugsa um að færa afmælið mitt í janúar til að brjóta þetta aðeins upp“ sagði leikarinn í viðtali á dögunum.

Skötuhjúin gengu í hjónaband á síðasta ári, en þau höfðu verið í sambandi síðan 2011. Theroux segist enn njóta hveitibrauðsdaganna út í ystu æsar.

„Þetta er dásamlegt. Ég er bara að komast í taktinn. Ég er að skjóta sjónvarpsþátt, og svo rýk ég heim, og svo fer ég aftur á sett. Og svo aftur heim“ segir Theroux, sem einnig er einn af handritshöfundunum Zoolander 2 sem frumsýnd verður hér á landi 19. febrúar.

Frétt Irish Independent

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson