Nýtir sér stefnumótasíðu

Raunveruleikastjarnan Khloe Kardashian áritar nýútkomna bók hennar.
Raunveruleikastjarnan Khloe Kardashian áritar nýútkomna bók hennar. AFP

Raunveruleikastjarnan Khloé Kardashian sleit á dögunum sambandi sínu við körfuboltakappann James Harden.

Kardashian beið ekki boðanna, heldur skráði sig til leiks á stefnumótasíðunni OK Cupid, líkt og greint er frá á vef Daily Mail.

„Ég hef aldrei notað stefnumótasíðu áður, en til gamans ákváðum við Malika að prófa. Það var í raun og veru ótrúlega skemmtilegt,“ viðurkenndi stjarnan.

Kardashian er ófeimin við að deila lífi sínu með umheiminum og var því ekkert að skafa utan af því og lét ýmislegt flakka á heimasíðunni til að lokka til sín föngulega karlmenn.

„Ég er alltaf með sterkt tamale í náttborðsskúffunni. Er einmitt að fara að borða svoleiðis núna.“

Þá segist Kardashian einnig vera sérlega hrifin af ítölskum mat auk þess sem hún viðurkennir að hún eyði miklum tíma með fjölskyldu sinni. Þá greinir hún frá því að uppáhaldsbókin hennar sé The Coldest Winter sem fjallar um þátttöku Bandaríkjanna í Kóreustríðinu.

Kardashian er enn gift fyrrverandi körfuboltakappanum Lamar Odom, en parið sleit samvistir árið 2013.

Khloé er ekki hrædd við að nýta sér tæknina, enda …
Khloé er ekki hrædd við að nýta sér tæknina, enda samfélagsmiðladrottning með meiru. Skjáskot Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson