Kynlíf lykillinn að góðu útliti

Gwyneth Paltrow er sátt í eigin skinni.
Gwyneth Paltrow er sátt í eigin skinni. AFP

Leikkonan Gwyneth Paltrow greindi frá því á dögunum að hún væri ekki lengur óánægð í eigin skinni.

„Ég held að það sé mikilvægt að vera hamingjusöm, en hamingjan fylgir því að vera maður sjálfur“ sagði leikkonan í samtali við tímaritið People.

„Ég trúi líka á það að hreyfa sig, borða holla fæðu, drekka vatn, stunda kynlíf, sofa og eyða tíma með fólki sem lætur þér líða vel. Og ég held að útgeislunin stafi af öllum þessum þáttum samanlögðum.“

Paltrow segist ekki óttast aldurinn, enda segist hún hafa unnið fyrir þessum gráu hárum.

„Mér líður betur með sjálfa mig nú heldur en fyrir 10 eða 20 árum. Ég myndi ekki vilja fara til baka. Ég var í tómu rugli þegar ég var tuttugu og eitthvað. Ég er ótrúlega þakklát fyrir að vera þar sem ég er í dag.“

Paltrow skildi við barnsföður sinn, söngvarann Chris Martin, árið 2014 en saman eiga þau tvö börn. Í dag á hún í sambandi við sjónvarpsframleiðandann Brad Falchuk, sem þekktur er fyrir þættina Glee og American Horror Story.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson