Mun Sony losa sig við Dr. Luke?

Stuðningsmenn Kesha söfnuðust saman fyrir utan höfuðstöðvar Sony í New …
Stuðningsmenn Kesha söfnuðust saman fyrir utan höfuðstöðvar Sony í New York í síðasta mánuði. AFP

Fjölmiðlar vestanhafs hafa nú greint frá því að Sony Music sé að undirbúa að slíta samningi við upptökustjórann Lukasz Gottwald eða Dr. Luke, vegna lagadeilna hans við söngkonuna Kesha. Mikil umræða hefur myndast um málið upp á síðkastið en Kesha hefur sakað Dr. Luke um að hafa beitt hana kynferðislegu, líkamlegu og andlegu ofbeldi. Dr. Luke neitar ásökununum.

Fyrri frétt mbl.is: Ke$ha: Föst milli steins og sleggju

Nú hefur lögmaður Dr. Luke neitað því að Sony ætli að losa sig við Dr. Luke en samningur upptökustjórans á ekki að renna út fyrr en eftir ár. „Þetta er ekki satt. Luke er í frábæru sambandi við Sony. Fulltrúar hans eru í stöðugu sambandi við yfirmenn Sony og þetta hefur aldrei verið nefnt,“ sagði Christine Lepera, lögmaður  Dr. Luke í yfirlýsingu.

Það var miðillinn Wrap sem sagði frá því í gær að Sony ætlaði að slíta samningi sínum við Dr. Luke. Að sögn ónafngreinds heimildarmanns vill fyrirtækið ekki líta út fyrir að styðja ekki við bakið á fórnarlömbum kynferðisofbeldis en fjölmargar kvenstjörnur hafa opinberlega lýst yfir stuðningi við Kesha, m.a. Adele á Brit verðlaununum í síðasta mánuði.

Adele á Brit verðlaununum.
Adele á Brit verðlaununum. AFP

Gaf Keshu 32 milljónir

Deilur Kesha við Dr. Luke og Sony hafa vakið mikla athygli og þá sérstaklega eftir að söngkonunni var meinað um lögbann á samning sinn við Dr. Luke af dómara í New York í febrúar. Eins og fyrr segir hafa fjölmargir lýst yfir stuðningi við Kesha en söngkonan Taylor Swift tók sig til og gaf Kesha 250.000 Bandaríkjadali (32.5 milljónir íslenskra króna) til þess að aðstoða hana í baráttunni. Kesha hefur ekki gefið út plötu síðan 2012 en árið 2014 lagði lögmaður henn­ar fram kæru fyr­ir henn­ar hönd gegn Dr. Luke fyr­ir ít­rekað kyn­ferðis­legt of­beldi. Dóm­stól­ar eiga enn eft­ir að taka af­stöðu til þess hluta kær­unn­ar 

Þá hafa söngkonurnar Demi Lovato, Ariana Grande, JoJo, Lily Allen, Halsey, Sara Bareilles og Lady Gaga allar lýst yfir stuðningi við Kesha ásamt Adele sem tileinkaði Brit verðlaunum sínum Kesha. Þá hafa hópar einnig safnast saman fyrir utan höfuðstöðvar Sony í New York og mótmælt.

„Hann er hæfileikaríkur en hann laug mikið“

Það vakti athygli fyrr í vikunni þegar að söngkonan Kelly Clarkson gagnrýndi Dr. Luke opinberlega en hann ber ábyrgð á stórsmellum söngkonunnar Since U Been Gone og My Life Would Suck Without You. Sagði Clarkson Dr. Luke bæði „lítilmannlegan“ og með „slæmt eðli“.

Sagði hún einnig að útgáfufyrirtækið RCA, sem tilheyrir Sony Music, hafi lengi þrýst á hana um að vinna með Dr. Luke.

„Hann er hæfileikaríkur en hann laug mikið,“ sagði Clarkson. „Ég hef lent í nokkrum mjög slæmum aðstæðum með honum. Tónlistarlega séð var þetta mjög erfitt því hann lýgur bara að fólki,“ sagði Clarkson og bætti við að það væri erfitt að vinna með Dr. Luke.

Umfjöllun The Los Angeles Times

Kesha á sviði.
Kesha á sviði.
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson