Felur sig með hamborgara meðan aðrir púla

Leikkonan Priyanka Chopra nennir ekki að púla í ræktinni.
Leikkonan Priyanka Chopra nennir ekki að púla í ræktinni. AFP

Leikkonan Priyanka Chopra segist ekki þurfa að púla í ræktinni til þess að halda línunum í lagi, enda sé hún svo heppin að hafa sérlega góð gen.

Leikkonan fer með hlutverk í nýrri kvikmynd um strandverðina knáu, þar sem hún leikur á móti Dwayne Johnson, Zac Efron og Kelly Rohrbach auk hinna gamalkunnu strandvarða Pamelu Anderson og David Hoff.

„Ég er í raun ekki sérlega hrifin af því að fara í ræktina. Ég er með sérlega góð indversk gen og þarf því ekki að æfa,“ sagði leikkonan í samtali við Us Weekly.

„Kelly Rohrbach hefur verið að reyna að sannfæra mig um að æfa með sér, og á hverjum morgni þegar hún reynir að draga mig með sér í ræktina segi ég, má ég sofa í hálftíma í viðbót? Eða segi að mér sé illt í maganum og finn einhverjar afsakanir. Þau þjálfa eins og skepnur, ég reyni bara að fela mig með hamborgarann minn.“

Áætlað er að nýja kvikmyndin um ævintýri strandvarðanna verði frumsýnd á næsta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson