Stefnir í sumarbrúðkaup?

Miley Cyrus og Liam Hemsworth voru par í fjögur ár. …
Miley Cyrus og Liam Hemsworth voru par í fjögur ár. Margir velta því nú fyrir sér hvort þau hyggist ganga í það heilaga eftir að hafa endurnýjað kynnin. Árni Sæberg

Samband Miley Cyrus og Liam Hemsworth hefur verið mikið milli tannanna á fólki síðustu misserin, en þau virðast hafa tekið upp þráðinn að nýju eftir að hafa slitið trúlofun sinni árið 2014.

Fjölmiðlar fóru því mikinn þegar fréttist að skötuhjúin hefðu eytt áramótunum saman, auk þess sem söngkonan hefur  ítrekað sést skarta trúlofunarhringnum sem Hemsworth færði henni á sínum tíma. Þá hefur hún einnig verið dugleg að deila myndum af sér, með hringinn, á samfélagsmiðlum.

Nú herma fregnir, enn á ný, að skötuhjúin séu að velta því fyrir sér að ganga í það heilaga.

Í nýjasta tölublaði tímaritsins Us Weekly er því haldið fram að söngkonan sé í óða önn að skipuleggja tilvonandi brúðkaup, og að móðir hennar taki virkan þátt í undirbúningnum.

Heimildarmaður blaðsins segir þó ekkert ákveðið, og telur skötuhjúin allt eins líkleg til að hlaupast á brott og láta pússa sig saman í Las Vegas.

Frétt Daily Mail

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson