Tileinkaði Jay Z síðasta lagið

Beyoncé hóf tónleikaferðalag sitt í gær.
Beyoncé hóf tónleikaferðalag sitt í gær. mbl

Hjónaband Beyoncé og rapparans Jay Z hefur mikið verið á milli tannanna á fólki undanfarna daga, einkum vegna útkomu nýrrar plötu söngkonunnar, Lemonade.

Margir hafa rýnt í texta plötunnar, sem eru afar opinskáir, og telja nokkuð víst að þar sé poppdrottningin að syngja um hjúskaparbrot eiginmannsins.

Þeir sem hlusta plötuna á enda hafa þó tekið eftir því að Beyoncé hefur tekið eiginmanninn í sátt, en platan endar á ljúfu nótunum. Sama var uppi á teningnum á fyrstu tónleikum söngkonunnar í Formation tónleikaferðalaginu sem hóf göngu sína í gær.

Poppdrottningin tileinkaði Jay Z síðasta lagið sem hún flutti, Halo, og sendi honum í leiðinni ástarkveðju.

„Ég vil tileinka þetta lag fallega eiginmanninum mínum. Ég elska þig svo mikið,“ sagði söngkonan áður en hún hóf upp raust sína og lokaði tónleikunum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson