Tónlistarmaðurinn Gunnar Birgis gefur í dag út sitt fjórða lag sem heitir „Litli strákur“. Höfundurinn notar orðin „hresst og uppbyggjandi“ um lagið, auk þess sem í því sé mikill „sumarfílingur“. „Segja má að hlustendur fái sumarið beint í æð þegar þeir hlusta á lagið,“ segir Gunnar.
Hann segir lagið í stuttu máli fjalla um það að gefa draumana sína ekki upp á bátinn þó að á móti blási. „Þegar þú ert lítill áttu þér alla þessa drauma sem þú reynir síðan að láta rætast. Sögumaðurinn talar við litla strákinn í sjálfum sér og stappar stálinu í sjálfan sig til að halda áfram ótrauður,“ segir Gunnar.
Textamyndbandið er tekið upp í Los Angeles í Bandaríkjunum og á að fanga sumarstemninguna yfir laginu, að sögn Gunnars, en Ingi Bauer úr Ice Cold gerði textamyndbandið. Lagið er unnið í samstarfi við Örlyg Smára.
Lagið má sjá hér