Eiginmaðurinn stendur sig ekki í bólinu

Pink og eiginmaður hennar, Carey Hart.
Pink og eiginmaður hennar, Carey Hart. Skjáskot Daily Mail

Söngkonan Pink er ekki sérlega hrifin af frammistöðu eiginmannsins í bólinu, enda segir hún hann gjarnan sofna þegar hún ætlar að tæla hann til lags við sig.

„Hann sofnar alltaf þegar hann er að svæfa Willow. Um daginn spurði ég hann hvort hann ætlaði að vaka í kvöld og hann svaraði, ég myndi vilja það,“ sagði söngkonan í viðtali við spjallþáttadrottninguna Ellen Degeneres.

„Ég sagði, ég veit ekki hvað það þýðir. Á ég að kveikja á kertum, opna vínflösku og setja á svið sýningu fyrir þig. Eða munt þú sofna aftur?“

Söngkonan taldi sig aldeilis vera að fara að detta í lukkupottinn, en allt kom fyrir ekki. Eiginmaðurinn steinsofnaði.

„Svo ég kveikti á kertunum, opnaði vínflösku og beið eftir honum í hálfan annan tíma. En ég er sokkin í Homeland þættina, þannig að þetta var í lagi.“

Söngkonan segir eiginmanninn þó ekki alsæman, „hann er ágætur. Hann er mjög myndarlegur og frábær pabbi. Þess vegna sofnar hann alltaf, því hún vill hafa hann hjá sér.“

Frétt Daily Mail

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson